Fjármálaráðuneytið segir samkomulag um Icesave skuldbindingarnar vera mikilvægur áfangi í endurreisn íslensks efnahags en í nótt náðist samkomulag milli íslenskra stjórnvalda annars vegar og breskra og hollenskra stjórnvalda hins vegar um Icesave málið svokallaða.

Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu kemur fram að breska fjármálaráðuneytið hefur þegar beint þeim tilmælum að aflétta frystingu á eignum Landsbankans í Bretlandi og mun það gerast strax 15. júní næstkomandi.

Samkvæmt samkomulaginu verða eignir Landsbankans notaðar til greiðslu á skuldbindingum vegna Icesave og íslenska ríkið mun engar greiðslur þurfa að inna af hendi vegna Icesave næstu sjö árin.

Árið 2016 mun Tryggingasjóður innstæðueigenda gefa út skuldabréf sem ríkissjóður ábyrgist og er líftími þess 8 ár. Eignir Landsbankans munu ganga til þess að borga það bréf niður.

Í framhaldinu verður málið kynnt almenningi og frumvarp lagt fram á Alþingi um ríkisábyrgð vegna þessa samkomulags. Forsætis- og fjármálaráðherra munu halda blaðamannafund síðar í dag þar sem nánar verður greint frá samkomulaginu.