Einhverjum kann að þykja spennandi að sofa á Overlook-hótelinu í Oregon í Bandaríkjunum sem leikur stórt hlutverk í kvikmyndinni The Shining eftir Stanley Kubrick og jafnvel ímynda sér í svefnrofunum að Jack Nicholson haltri um ganga hótelsins með öxi.

Þeir sem kjósa slíkt, nú eða ferðast til staða þar sem eftirminnilegir atburðir hryllingsmynda eiga að hafa átt sér stað, geta kíkt á vefsíðu Lonely Planet og kíkt á ýmsa slíka staði.