Magma Energy hefur fjárfest fyrir 17,5 milljarða íslenskra króna í HS Orku. 15,6 milljörðum hefur verið varið til kaupa á hlutabréfum í fyrirtækinu og tveir milljarðar verða lagir til sem nýtt hlutafé, til að styrkja eignfjárstöðu HS Orku.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Magma Energy en þar kemur fram að samkvæmt samþykktum samningum greiðir Magma tæplega 12,5 milljarða króna fyrir hluti Orkuveitu Reykjavíkur, Hafnafjarðarbæjar og Sandgerðisbæjar í HS Orku á genginu 6,31.  30 prósent kaupverðsins greiðist með peningum við undurritun samninga og afgangurinn með skuldabréfum til sjö ára.

„Alls nema skuldbindingar Magma Energy vegna kaupa á hlutabréfum í HS Orku af OR, Hafnafjarðarbæ, Sandgerðisbæ og Geysi Green Energy um 15,6 milljörðum króna,“ segir í tilkynningunni.

„Tæplega 6,9 milljarðar þeirrar upphæðar eru greiddar með peningum og ríflega 8,7 milljarðar með skuldabréfum. Til viðbótar við þá 15,6 milljarða króna sem Magma ver til kaupa á hlutabréfum í HS Orku hefur félagið einnig skuldbundið sig til að leggja HS Orku til tvo milljarða í nýju hlutafé, til að styrka eiginfjárstöðu fyrirtækisins.“

Samkvæmt tilkynningunni gerir útgáfa skuldabréfa Magma kleift að bjóða seljendum hærra verð fyrir bréfin í HS Orku. Þannig geti verðtrygging bréfanna með tengingu við þróun álverðs í heiminum aukið hagnað seljenda enn frekar. Samkvæmt ákvæði í samningunum eykst virði sölunnar ef álverð hækkar en minnkar ekki þótt álverð lækki. Þá greiðir Magma árlega vexti af umræddum skuldabréfum og lánin að fullu eftir sjö ár.

Þá kemur einnig fram að með þessum beinu fjárfestingum hafi Magma Energy jafnframt skuldbundið sig til að tryggja allt að 600 milljón dala fjármögnun nýrra orkuvera HS Orku sem þörf er fyrir á næstu 5-6 árum.

„Það er markmið Magma Energy að styrkja enn frekar fjárhagsstöðu HS Orku í samstarfi við aðra eigendur fyrirtækisins,“ segir í tilkynningunni.

„Magma hyggst beita sér fyrir því að arður af starfsemi HS Orku næstu árin verði ekki greiddur út, heldur nýttur til fjárfestinga sem styrka fjárhagslega stöðu fyrirtækisins enn frekar. Samningar um kaup Magma Energy á hlutafé í HS Orku eru í nafni dótturfélags Magma í Svíþjóð, þar sem lagalegar hindranir komu í veg fyrir stofnun dótturfélags Magma á Íslandi. Ákveðnir fyrirvarar í lánasamningum milli Magma Sweden og seljenda hlutabréfanna í HS Orku skuldbinda félagið til að hafa ávallt tiltæka fullgilda tryggingu vegna skuldabréfanna. Inngreiðsla nýs hlutafjár í beinhörðum peningum og skuldbindingar Magma um frekari fjárfestingar í HS Orku er jafnframt ætlað að tryggja hagsmuni skuldabréfaeigendanna.“