HS Orka hefur nú náð samkomulagi við lánadrottna sína um breytingar á skilmálum erlendra lána eftir að fyrir lá að félagið uppfyllti ekki kröfur um eiginfjárhlutfall og rekstrarhlutföll í kjölfar falls íslensku krónunnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

„Þegar fyrir lá í upphafi þessa árs að HS Orka stóð ekki lengur við kröfur í lánasamningum um eiginfjárhlutfall eftir að krónan féll, var þess sérstaklega getið í ársreikningi félagsins og í áritun endurskoðenda,“ segir í tilkynningunni en fram kemur að félagið hafi strax hafið samningaviðræður við erlenda lánveitendur sína, Norræna fjárfestingarbankann (NIB), Evrópska fjárfestingarbankann (EIB) og Evrópska þróunarbankann (CEB).

Fram kemur að þessar viðræður hafa leitt það af sér að nú hefur verið undirritað samkomulag við banka félagsins. Samkomulagið felur í meginatriðum í sér að lánveitendur HS Orku auka svigrúm félagsins til frávika frá fjárhagskvöðum ásamt því að samþykkja uppskiptingu Hitaveitu Suðursnesja í HS Orku og HS Veitur hf.

Þess í stað veitir HS Orka beinar veðtryggingar vegna lána í eignum félagsins, í stað óbeinna veða áður, auk þess sem bankarnir hækka vaxtaálag sitt tímabundið. Þá er staðfest að bankarnir viðurkenna HS Orku sem nýjan skuldara í stað Hitaveitu Suðurnesja hf. í kjölfar uppskiptingar fyrirtækisins.

„Það er afar ánægjulegt og mikilvægt fyrir félagið að hafa náð þessu samkomulagi við lánveitendur sína,“ segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku í tilkynningunni. J

Júlíus segir jafnframt að 9 mánaða uppgjör félagsins sýni fram á bata á hlutföllum í takt við áætlanir félagsins en eiginfjárhlutfall þess var 23% í lok september í stað 16,3% í ársbyrjun.