Á aðalfundi HS Veitna 18. mars var, eins og kynnt hefur verið, gengið frá kaupum á eigin hlutabréfum að nafnvirði 262.129.000 króna og kaupvirði 2.000.000.000 króna. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Aðalfundur samþykkti í framhaldinu að færa niður hlutafé fyrirtækisins um sömu upphæð þannig að nafnverð hlutafjár fyrirtækisins lækkar úr 1.336.429.000 krónum í 1.074.300.000 krónur.

Til þess að fjármagna miklar áætlaðar fjárfestingar næstu tvö ár og ofangreind hlutabréfakaup hafa HS Veitur gefið út nýjan skuldabréfaflokk HSVE 15 01, að fjárhæð kr. 2.500.000.000 að nafnvirði. Skuldabréfin voru seld í lokuðu útboði á ávöxtunarkröfunni 3,40%.