Stjórn HS Veitna. hf. vill endurfjármagna skuldabréfaflokk félagsins sem er skráður í Kauphöllinni. Markmiðið með þessu er að afborgunarferli flokksins falli betur að rekstrinum en í dag er hann með vaxtagreiðslubréf með gjalddaga höfuðstóls 15.desember 2018. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.

Deloitte Fjármálaráðgjöf efh. mun aðstoða félagið við mögulega endurfjármögnun og sjá um að vera tengiliður félagsins við núverandi eigendur skuldabréfaflokks.

Stjórn HS Veitna óskar því eftir því að skuldabréfaeigendur hafi samband við Deloitte Fjármálaráðgjöf ehf til að nálgast tilboðsdrög.