HSBC Holdings PLC er sagt ætla að selja alla starfsemi sína í Frakklandi. Um er að ræða 300 útibú víðsvegar um landið, en breska dagblaðið Sunday Times greinir frá þessum orðrómi.

Eignarhaldsfélagið er sagt hafa fengið Goldman Sachs til liðs við sig í því að skoða möguleika á sölu á franska útibúanetinu. Þessar fregnir ýta enn undir þann orðróm að HSBC Holdings ætli að leggja æ meiri áherslu á nýmarkaðsríki.

HSBC hefur ekki svarað þessum óstaðfestu fregnum.