Í kjölfar vaxtahækkunar Seðlabankans um 0,5 prósentustig í 15,5% eru vextir nú hvergi hærri í heiminum meðal ríkja með þróaðan fjármálamarkað.

Tyrkir hafa um nokkurt skeið verið með hæstu stýrivexti í heimi en eftir ákvörðun Seðlabankans í morgun fær Ísland nú þann vafasama heiður.

Stýrivextir í Tyrklandi eru nú 15,25% og segir greiningadeild Glitnis líklegt að enn muni bilið breikka á milli stýrivaxta Tyrklands og Íslands á næstu mánuðum þar sem Seðlabanki Tyrklands er í lækkunarferli og hefur alls lækkað stýrivexti sex sinnum síðan í september síðastliðnum.

„Búist er við að vextir muni lækka enn frekar á næstu mánuðum í Tyrklandi en við gerum ráð fyrir að stýrivextir haldist óbreyttir hér á landi í 15,5% þar til í haust,“ segir í Morgunkorni Glitnis.

Þriðju hæstu vextir í heiminum eru í Brasilíu þar sem vextir eru 11,25% en fast á hæla Brasilíu fylgir S-Afríka þar sem vextir eru 11%. Fimmtu hæstu vextir í heiminum eru í Egyptalandi þar sem vextir eru 9,5%.