Hætt hefur verið við kaup Eddu Printing and Publishing Ltd. á Prentmeti ehf. Greint var frá kaupunum í febrúar en þar kom fram að kaupin voru gerð í nafni óstofnaðs eignarhaldsfélags í eigu Eddu og hluthafa þess. Kaupin voru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun en þegar niðurstaða hennar lág fyrir var, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins, ljóst að aðilar næðu ekki saman um endanlegt kaupverð. Því var fallið frá kaupunum.

Fyrir átti Edda PP allt hlutafé í Edda Printing LLC sem rekur eina stærstu og fullkomnustu prentsmiðju Pétursborgar í Rússlandi. Áætluð sameiginleg velta prentsmiðjanna á Íslandi og Rússlandi á yfirstandandi ári var vel á fjórða milljarð króna og þar af rúmlega helmingur ytra.

Prentmet var stofnað 1992 af hjónunum Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttur. Fyrirtækið hefur dafnað vel og starfa þar nú rúmlega 100 manns. Dótturfélag Prentmets, Prentverk Akraness, átti að fylgja með í kaupunum. Ætlunin var að Guðmundur Ragnar og Ingibjörg Steinunn myndu starfa áfram hjá fyrirtækinu.

Eigendur Eddu Printing and Publishing Ltd. eru Björgólfur Guðmundsson, Magnús Þorsteinsson, Páll Bragi Kristjónsson og Þór Kristjánsson.