Sá hópur fjárfesta sem á síðustu vikum hefur átt í viðræðum um kaup á tryggingarfélaginu Sjóva hefur hætt við kaup á félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjárfestahópinum en Heiðar Már Guðjónsson fór fyrir honum. Meðal annarra sem voru með í hópnum voru Ársæll Valfells hagfræðingur, Guðmundur og Berglind Jónsbörn kennd við Sjólaskip, og Frjálsi lífeyrissjóðurinn auk Stefnis eignastýringarfyrirtækisins í eigu Arion banka.

Tilkynningin í heild:

„Fjárfestahópur segir sig frá söluferli Sjóvá

Undanfarin misseri hefur hópur fjárfesta átt í samningaviðræðum við Eignasafn Seðlabanka Íslands ehf. og Íslandsbanka hf. um kaup á hlutum þeirra í Sjóvá Almennum tryggingum hf. Hópurinn átti hæsta tilboð í félagið í auglýstu söluferli á félaginu sem hófst 18. janúar sl. og Íslandsbanki hf. annaðist. Hópurinn veitti seljendum frest til 22. október sl. til að staðfesta fyrir sitt leyti kaupsamning um fyrrgreinda hluti, ella teldi hópurinn að söluferlinu væri lokið án þess að kaup hefðu tekist. Nú um það bil mánuði síðar hefur enn ekki verið tekin afstaða af hálfu seljenda til fyrirliggjandi samnings. Hefur hópurinn því formlega tilkynnt seljendum um að þátttöku hans í ferlinu sé lokið.

Fjárfestahópurinn harmar þessa niðurstöðu mjög, eftir ómælda vinnu við að reyna að ljúka viðskiptum með farsælum hætti, en óskar félaginu og starfsmönnum þess hins besta í framtíðinni.“