Baugur íhugar að kaupa breska matvæladreifingarfyrirtækið Brakes fyrir 1,2 milljarða punda (157 milljarða íslenskar krónur) og sameina Woodward Foodservice, segir í frétt breska sunnudagsblaðsins The Observer.

Woodward Foodservice var hluti af The Big Food Group, sem einnig innihélt Iceland-verslunarkeðjuna. Fjárfestingasjóðurinn Clayton Dubilier & Rice ákvað að selja Brakes fyrr í þessum mánuði.