HugurAx hefur styrkt Hetjurnar, félag langraveikra barna á Norðurlandi, um þrjú hundruð þúsund krónur, að því er fram kemur í tilkynningu.  Hetjurnar er aðildarfélag Umhyggju, sem eru regnhlífarsamtök fyrir foreldrafélög langveikra barna á Íslandi.

HugurAx styrkir árlega góðgerðar- eða líknarmálefni með fjárstyrk í stað þess að senda jólakort til viðskiptavina fyrirtækisins.

Það er von starfsmanna HugarAx að þessi styrkur muni efla starfsemi félagsins og styrkja það í að sinna sínu mikilvæga hlutverki í framtíðinni.