Hulda Bjarnadóttir hefur tekið við sem framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs Viðskiptaráðs Íslands af Kristínu S. Hjámtýsdóttur sem hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Rauða kross Íslands.

Hulda hefur undanfarin fimm ár starfað sem framkvæmdastjóri FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu, auk að sitja í ýmsum félags- og fyrirtækjastjórnum. Hulda hefur reynslu úr fjölmiðlum og hefur jafnframt unnið við ráðgjöf og kennslu í almanntengslum og viðburðarstjórnun fyrir innlend og erlend fyrirtæki.

Hulda er með BSc í viðskiptafræði og MBA frá Háskólanum í Reykjavík.