Hulda Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í stöðu sviðsstjóra sölu- og markaðssviðs hjá dk hugbúnaði. Greint er frá ráðningu hennar í fréttatilkynningu þar sem segir að hjá dk starfi meira en 60 manns við hugbúnaðargerð og þjónustu en viðskiptavinir fyrirtækisins séu á sjöunda þúsund úr flestum atvinnugreinum.

Hulda var áður framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar norska tækni fyrirtækisins Itera sem hefur síðastliðin 5 ár verið á lista yfir topp 20 mest nýskapandi fyrirtæki Noregs, þvert á atvinnugreinar. Árið 2019 stofnaði hún ásamt eiginmanni sínum Clarito, sem sérhæfði sig í stjórnun viðskiptatengsla með skýjalausnum frá Microsoft. Frá 2015-2017 var Hulda sölustjóri samstarfsaðila hjá Crayon og frá 2007-2014 starfaði hún hjá Microsoft, lengst af sem sölustjóri lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Hún hefur einnig verið mannauðsstjóri hjá Fjármálaeftirlitinu, yfirmaður markaðsrannsókna hjá Icelandair og deildarstjóri tölfræði hjá Flugmálastjórn.

Hulda er einn af stofnendum VERTOnet, samtaka kvenna í upplýsingatækni, og var meðeigandi að Tækninám.is. Hulda er iðnrekstrarfræðingur, með BSc í alþjóðlegri markaðsfræði frá Tækniháskóla Íslands og MA-diplómu í fræðslu og stjórnun frá HÍ auk þess að vera PCC-vottaður markþjálfi.

Í tilkynningunni kveðst Hulda alltaf spennt að takast á við ný verkefni í starfi. „Það eru gríðarlega áhugaverði hlutir að gerast hjá dk Hugbúnaði sem er leiðandi í viðskiptahugbúnaði smárra og meðalstórra fyrirtækja. Ég hlakka til að nýta reynslu mína og þekkingu til að halda áfram því frábæra starfi sem þar er unnið, og legg metnað minn í að dk haldi áfram að vera leiðandi í stafrænni og gagnadrifinni framtíð.“

„Það er mikill akkur í því fyrir dk hugbúnað að fá reynslumikla konu úr upplýsingatæknigeiranum eins og Huldu í stjórnendateymi fyrirtækisins,“ er haft eftir Dagbjarti Pálssyni, framkvæmdastjóra dk.