Baugur og fjárfestahópur sem leiddur er af skoska athafnamanninum Tom Hunter hafa gert yfirtökutilboð í breska blómarisann Wyevale Garden Centres, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

Kauptilboðið hljóðar upp á 555 pens á hlut og er heildarkaupverðið 311 milljónir punda, eða tæpir 44 milljarðar íslenskra króna. Stjórn Wyevale mun mæla með tilboðinu, segja heimildarmenn Viðskiptablaðsins

Hunter hefur tekið þátt í ýmsum fjárfestingum með Baugi, svo sem í Big Food Group, House of Fraser og fasteignafélaginu LXB.