Neytendastofa hefur sektað Húsasmiðjuna um 350 þúsund krónur fyrir brot á verðmerkingareglum.

Neytendastofa gerði athugasemdir við verðmerkingar hjá Húsasmiðjunni eftir að fulltrúar í verðmerkingareftirliti fóru í byggingavöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu. Kannað var hvort vörur væru verðmerkingar auk þess sem sérstaklega var skoðað hvort samræmi væri á milli verðs á hillu og á kassa á 25 vörum sem valdar voru af handahófi.

Niðurstaðan var sú að verðmerkingarnar voru ófullnægjandi hjá Húsasmiðjunni í Skútuvogi. Neytendastofa veitti Húsasmiðjunni frest til að lagfæra merkingarnar áður en þær yrðu kannaðar aftur. Þegar skoðuninni var fylgt eftir kom í ljós að verslun Húsasmiðjunnar í Skútuvogi hafði ekki gert fullnægjandi lagfæringar á verðmerkingum sínum. Því hefur Neytendastofa nú lagt 350.000 kr. stjórnvaldssekt á fyrirtækið.