Húsgagnahöllin mun opna verslun á Akureyri í maí og verða þar einnig seldar vörur frá Dorma og Betra Baki, en verslanirnar þrjár eru allar í eigu bræðranna Egils og Guðmundar Reynissona.

Fasteignafélagið SMI og Húsgagnahöllin hafa skrifað undir leigusamning um tæplega 1.400 fermetra verslunarhúsnæði að Dalsbraut 1 við Glerá á Akureyri.

Í tilkynningu segir að allar vörur verði á sama verði og í Reykjavík. Nú fari í hönd mannaráðningar og leitar verslunin að fjórum heimamönnum í vinnu. Húsgagnahöllin á Akureyri mun opna í maí næstkomandi eftir umtalsverðar endurbætur á húsnæðinu að innan sem utan.