Starfsmenn sérstaks saksóknara gerðu í dag húsleit á starfsstöð Þórs Sigfússonar, formanns SA, á skrifstofu samtakanna, en Þór hefur haft þar starfsaðstöðu í nokkrar undanfarnar vikur.
Þetta kemur fram á vef Samtaka atvinnulífsins.
„Leitað var að gögnum sem tengjast fyrri störfum Þórs hjá Sjóvá en sérstakur saksóknari hefur í dag látið leita víðar að gögnum um fjárfestingastarfsemi fyrirtækisins á undanförnum árum. Þór er leitarþoli í þessu tilviki en réttarstaða hans í málinu hefur ekki verið skilgreind að öðru leyti," segir á vefnum.
Þar segir enn fremur að Þór sé nú í sumarfríi og taki ekki þátt í störfum SA á meðan. „Vonast er til að þegar Þór kemur úr fríi undir lok mánaðarins liggi réttarstaða hans í málinu fyrir."