Í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á kaupum félagsins Q Iceland Finance ehf á 5,01% hlut í Kaupþing banka fóru fram húsleitir á tíu stöðum í dag og síðastliðinn þriðjudag, að undangengnum úrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur að því er segir í tilkynningu sem embættið var að senda frá sér.

Þar kemur fram að til rannsóknar er grunur um meinta markaðsmisnotkun og eftir atvikum brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við umrædd kaup á hlutabréfum í bankanum í lok september 2008. Um er að ræða verulega fjárhagslega hagsmuni og rannsóknin tengist fjölda manns. Yfirheyrslur vegna rannsóknarinnar eru hafnar af hálfu embættisins.

Aðgerðirnar í dag voru víðtækar og hófust með leit á þremur stöðum samtímis kl. 10 í morgun. Alls tóku um 20 manns þátt í þeim þ.e. starfsmenn embættisins, lögreglumenn frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra sem og starfsmenn frá Fjármálaeftirlitinu.

Frekari upplýsingar um framgang rannsóknarinnar er ekki unnt að veita að svo stöddu vegna rannsóknarhagsmuna segir í tilkynningu.

Q Iceland Finance, eignarhaldsfélag í eigu eignarhaldsfélags í eigu sjeiks Al-Thani eignaðist 5,01% í Kaupþingi. Keyptir voru 37,1 milljón hlutir á genginu 690 þann 22. september 2008.

Í Kastljósviðtali í vetur kom fram að Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, hafði í desember sl. sent efnahagsbrotadeildinni ríkissaksóknara bréf um hlutabréfakaup sjeik Mohamed Bin Khalifa Al-Thani í Kaupþingi.