Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,1% í júlímánuði og hefur nú hækkað um 25,5% á ársgrundvelli. Til samanburðar mældist árshækkun vísitölunnar 25,0% í júní. Vísitalan hækkaði síðast meira á ársgrundvelli í desember 2005, þá um 31,0%.

Vísitalan hefur hækkað um 6,4% á síðustu þremur mánuðum og 15,5% á síðasta hálfa ári. Þjóðskrá birti tölur fyrir júnímánuð í dag en vísitalan sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Fjölbýli hækkaði um 0,5% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 25,7% undanfarna tólf mánuði. Vísitala íbúðaverðs fyrir sérbýli hækkaði um 3,7% á milli mánaða. Tólf mánaða hækkun sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu mælist nú 25,3%.