Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 574,6 stig í maí 2017 og hækkaði um 1,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 6,9%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 13,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 23,5%. Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár Íslands .

Hækkaði verð á íbúðum í fjölbýli um 2,1% og sérbýli um 0,8%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.