Húsnæðisvísitalan hækkaði um 0,7% í apríl frá fyrri mánuði og er 393,6 stig. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 4,4%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 4,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 11,2%. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.