Engar eignir voru til upp í kröfur í þrotabú Björns Braga Mikkaelssonar þegar skiptum á því lauk. Kröfurnar námu 114,8 milljónum króna. Björn Bragi er þekktastur fyrir að hafa lagt hús sitt á Álftanesi í rúst frammi fyrir sjónvarpsmyndavélum á þjóðhátíðardaginn 17. júní árið 2009. Hann sagði í fjölmiðlum engu hafa að tapa. Erlend lán hafi hvílt á húsinu. Hann hafi reynt að semja við viðskiptabanka sinn en ekki verið hlustað á hann þar. Húsið missti Björn Bragi á uppboði skömmu eftir bankahrunið.

Sjálfur var Björn dæmdur í héraðsdóm Reykjaness árið 2012 í 18 mánaða fangelsi fyrir að eyðileggja húsið, fjársvik og skattsvik auk brota á bókhaldslögum. Þar að auki var hann dæmdur til að greiða fólki sem hafði ætlað að kaupa innflutt einingahús fyrir milligöngu hans um 14 milljónir króna vegna fjársvika. Samtals hljóðaði fjárhæðin sem hann var dæmdur til að greiða upp á um 19 milljónir króna auk málskostnaðar.

Björn var úrskurðaður gjaldþrota í nóvember í fyrra. Í Lögbirtingablaðinu í dag kemur fram að skiptum hafi lokið 24. mars síðastliðinn án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur, auk áfallinna vaxta og kostnaðar eftir úrskurðardag gjaldþrotaskipta.