Það kostar í kringum 20 milljónir íslenskrar krónur að leigja einkaþotuna Golfstream V yfir heila helgi þegar ferðinni er heitið frá New York til San Fransisco. Inni í tölunni er allur kostnaður, þ.m.t. ferðir til og frá flugvelli.

Listinn hér fyrir neðan sýnir meðal-leiguverð á einkaþotu í Bandaríkjunum. Verðið er í íslenskum krónum fyrir hverja klukkustund.

Verðið væri mun hærra ef leigufélagið væri íslenskt, bæði vegna mun hærri virðisaukaskatts á Íslandi og staðsetninga vélanna en eftir því sem ferðir eru fleiri á ákvörðunarstað minnkar biðtími sem er dýr í rekstri einkaþotu.

Kostnaður við einkaþotur.
Kostnaður við einkaþotur.

Fjárfestirinn Warren Buffett eyðir persónulega í kringum 100 milljónum króna á ári í einkaþotur, eins og Viðskiptablaðið sagði frá í vikunni . Það samsvarar aðeins fimm helgarferðum til San Fransisco frá New York.