Hvalaskoðun Akureyrar og Ambassador, sem er einnig hvalaskoðunarfyrirtæki á Akureyri eru nú að leggja lokahönd á sameiningu félaganna tveggja að því er Túristi greinir frá .

Rekstur sameinaðs fyrirtækis mun eiga að vera í höndunum á Hvalaskoðun Akureyrar sem er dótturfélag Eldingar, stærsta hvalaskoðunarfyrirtækis landsins.

Bæði Hvalaskoðun Akureyrar og Ambassador bjóða upp á daglegar ferðir út á Eyjafjörð allt árið um kring.