Fram kemur á vef Ferðamálastofu að dagana 13. og 14. mars hafi verið haldin í Reykjavík hvalaskoðunarráðstefna á vegum Hvalaskoðunarsamtaka Íslands í samstarfi við IFAW (International Fund for Animal welfare).
Ráðstefnan þykir hafa heppnast vel en þetta er í fyrsta skipti sem ráðstefna sem þessi er haldin hér á landi. Veður var gott þá daga sem ráðstefnugestir voru hér á landi og því tókst vel upp að kynna Ísland sem ákjósanlegan áfangastað fyrir hvalaskoðun.