Ökumenn aka hraðast í Hvalfjarðargöngum á fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum en halda bensínfætinum betur í skefjum aðra daga vikunnar. Sá sem ók hraðast í göngunum á síðasta ári fór á 113 km hraða og sá á yfir höfði sér 60.000 króna sekt og þrjá punkta í ökuferilsskrá.

Þá ályktun má draga af afar fróðlegum upplýsingum sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur dregið saman eftir hraðamælingar í eina viku núna í janúar, frá fimmtudegi 22. janúar til fimmtudags 29. janúar.

Vöktuð var umferð á norðurleið og þá leið fóru 13.582 ökutæki á tímabilinu. Einn af hundraði ökumanna fór yfir strikið og braut gegn ákvæðum laga um hámarkshraða eða alls 155 ökumenn. Meðalhraði þeirra brotlegu var 83,6 km/klst.

Ellefu ökumenn mædust á 90 km hraða eða meira. Þeirra bíður að greiða sekt upp á 15.000-40.000 króna sekt. Fjórir voru á 100 km hraða eða meira. Þeirra bíður sekt upp á 40.000-50.000 og einn til tveir refsipunktar í ökuferilsskrá.