Ísland og Noregur hafa hafið útflutning hvalkjöts til Japans að nýju. Reuters segir löndin gera þetta í trássi við bann Sameinuðu þjóðanna. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf, segir í samtali við fréttastofuna að útflutningurinn muni bæta hag allra sem að málinu standa.
Kristján segir íslenskt hvalveiðifyrirtæki hafa selt 80 af langreyðarkjöti frá 2006 til Japans. Noregur hefur Japönum 5 tonn af hrefnukjöti.
Kristján segir jafnframt hungraða unnendur hvalkjöts í Japan vera marga í dag, og bætti við að þegar væru einhverjar sendingar komnar á áfangastað.
Forsvarsmenn náttúruverndarsamtaka kalla aðgerðir Íslands, Noregs og Japans ógeðfellda sýningu.