Nokkrar tafir urðu á flugi til útlandaí hvassviðrinu í gær þegar vindhraði fór yfir öryggismörk vegna afgreiðslu við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli. Hvassviðri eins og það sem gekk yfir í gær hefur jafnan ekki áhrif á flugtök og lendingar á flugvellinum. Afgreiðsla við flugstöð takmarkast hins vegar við hámarksvindhraða sem öruggt er að leggja landgöngubrúm í við flugvélar.

Vindhraði í gær náði 27 m á sekúndu í verstu hviðum á Keflavíkurflugvelli. Flugvélar sem lenda við slík skilyrði verða að bíða afgreiðslu þangað til vindstyrkur fer niður í þau mörk sem leyfa notkun landgöngubrúa. Ef flugvélar eru við landgöngubrýr þegar vindur nær slíkum styrk verður að færa brú frá og bíða þess að dragi úr vindi.

Búist er við hvassviðri aftur yfir í kvöld þótt ekki sé spáð álíka vindhraða og varð gær.