Sumarherferð markaðsverkefnisins Inspired by Iceland hefst í dag. Aðaláhersla herferðarinnar er að hvetja ferðamenn til að ferðast um landið með ábyrgum hætti. Það er gert með því að samþykkja loforð sem kallast „The Icelandic Pledge“ á vef Inspired by Iceland. Loforðið nær til átta atriða sem stuðla að ábyrgri ferðahegðun, svo sem að virða náttúruna og skilja við hana eins og komið var að henni, að keyra ekki utan vega, að koma sér ekki í hættulegar aðstæður við að taka myndir, að tjalda á viðeigandi tjaldsvæðum sem og að vera vel útbúinn á ferðalagi um Ísland í öllum veðrum. Ísland er fyrsta landið sem býður gestum sínum að lofa því að ferðast um landið á ábyrgan og öruggan hátt og að ganga vel um náttúru landsins.

Með þessari sumarherferð er hægt að hafa jákvæð áhrif á hegðun ferðamanna á ferðum þeirra um landið.  Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mun ýtti verkefninu úr vör með því að samþykkja loforðið við Landnámssetrið í Borgarnesi í dag. Auk ráðherra samþykktu aðilar frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Íslandsstofu og Landsbjörgu loforðið.

Þórdís Kolbrún segir að ferðamenn sem komi til Íslands vilji ferðast með ábyrgum hætti, en viti oft ekki hvað það felur í sér. Loforðið sé liður í að bjóða ferðamenn velkomna og hvetja þá til að ferðast um landið á ábyrgan og öruggan hátt og hafa í huga viðkvæma náttúru landsins. Þórdís segir jafnframt að ánægðir ferðamenn hafi jákvæð áhrif á orðspor og ímynd landsins til lengri tíma. Það sé mikilvægt að stuðla að því að ferðaþjónustan dafni í sátt við samfélag og náttúru.