Hver ferðamaður greiddi með greiðslukorti sínu hér á landi 106 þúsund krónur að meðaltali í júlí. Þetta sýna tölur frá Rannsóknarsetri verslunarinnar.

Veltan jókst um 17%
Greiðslukortavelta erlendra ferðamanna í júlí jókst alls um 17,4% frá sama mánuði í fyrra og nam liðlega 13,1 milljörðum króna. Mestu er varið í gistingu, næstmestu í verslun og þar næst í ýmsa skipulagða ferðaþjónustu eins og skoðunarferðir og hvalaskoðun. Veitingaþjónusta er í fjórða sæti yfir þá útgjaldaflokka sem erlendir ferðamenn greiða fyrir þjónustu með kortum sínum.

Aðrir gististaðir en hótel virðast eiga vaxandi vinsældum að fagna meðal erlendra ferðamanna. Þannig  jókst kortavelta annarra gististaða en hótela í júlí um 95% frá sama mánuð í fyrra og nam 20 millj. kr.  Ferðamenn virðast þannig sækja í auknum mæli gistingar utan hefðbundinna hótela.

Verja meiru í ferjusiglingar
Mikil aukning hefur orðið í greiðslum erlendra ferðamanna fyrir ferjuflutninga. Þannig jukust greiðslur í ferjusiglingar um 230% á milli ára. Líklega eru það auknar vinsældir siglinga með Herjólfi til Vestmannaeyja sem hafa mest áhrif. Erlendar kortagreiðslur til bílaleiga jukust um 20% frá sama mánuði í fyrra og námu 1,1 milljarði króna.

Erlendir ferðamenn greiddu 596 milljónir króna með kortum sínum í júlí í dagvöruverslunum sem var 20% aukning frá síðasta ári. Þá keyptu útlendingar föt hér á landi fyrir 505 milljónir króna í júlí, en það nemur þriðjungi af meðalveltu íslenskrar fataverslunar í hverjum mánuði á síðasta ári. Hins vegar er nánast engin aukning í minjagripaverslunum á milli ára.