Hver flugtími í flugvél Bandaríkjaforseta, Air Force One, kostar 181.757 dali eða 21 milljón króna. Bandaríski herinn, sem rekur flugflota forsetans, lét Fox sjónvarpsstöðinni þessar tölur í té.

Samkvæmt þessu kostaði síðasta flugferð Barack Obama til Lissabon í Portúgal á leiðtogafund Nato um 2,7 milljónir dala. Það gerir 307 milljónir króna.