Viðskiptablaðið hafði samband við nokkra einstaklinga í mismunandi greinum, spurði þá hvernig þeim fannst árið og hvað þeir vilja sjá á nýju ári.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum:

Hvernig var árið?

Árið 2011 var Eyjamönnum almennt gott. Í viðbót við hefðbundnar veiðar og vinnslu þá settu makrílveiðar og vinnsla mikinn kraft í atvinnulífið yfir sumarið. Ferðaþjónustu hér í Eyjum hefur einnig vaxið fiskur um hrygg með tilkomu Landeyjahafnar.

Hvað var vel gert?

Útflutningsgreinar standa sig afar vel. Sjávarútvegurinn skilar þúsundum heimila í landinu auknum tekjum og ríkinu gríðalegum skatttekjum. Heilt yfir þá vekur það aðdáun mína að sjá hvað fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum hafa verið fljót að straumlínulaga sig og ýmist lámarka skaðan af ástandinu eða jafvel að nýta sér það.

Hvað var slæmt?

Sundurleiti ríkisstjórnar hefur gert það að verkum að við töpum nú hverju árinu á eftir öðru. Það myndi ekki ganga í litlu hlutafélagi að stjórn þess kæmi sér ekki saman um meginlínur enda myndi slíkt valda rekstrinum stórum skaða.

Hvað viltu sjá á nýju ári

Á nýju ári myndi ég vilja sjá fjárlög íslenska ríkisins núllstillt. Það gengur ekki að halda áfram að skera niður grunnþjónustu. Ég myndi vilja sjá pólitískum þrætueplum svo sem umsókn um aðild að ESB, breytingar á stjórnarskrá, breytingar á stjórnunun sjávarútvegs og fl. vikið til hliðar.

Fleiri ummæli má sjá í Áramótum, tímariti Viðskiptablaðsins sem kom út á milli jóla- og nýárs.