Stjórn Félags leiðsögumanna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem allir félagsmenn eru hvattir til að standa með öðrum starfsstéttum, sem neyðst hafa til að grípa til verkfallsvopnsins til að knýja fram nauðsynlegar kjarabætur.

Sérstaklega eru félagsmenn hvattir til þess að ganga ekki í störf annarra s.s. bílstjóra. Að auki er áréttað að samkvæmt því sem ASÍ segir um vinnurétt, þá skulu önnur stéttarfélög gæta þess að félagsmenn þeirra séu ekki látnir ganga í störf þeirra sem eru í verkfalli .

Strax á fimmtudaginn hefjast tímabundnar verkfallsaðgerðir Flóabandalagsins, VR og Landssambands íslenskra verslunarmanna. Aðgerðirnar á fimmtudaginn og föstudaginn beinast gegn hópbifreiðafyrirtækjum. Fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir:

  • Hópbifreiðafyrirtækið 28. og 29. maí.
  • Hótel, gististaðir og baðstaðir 30. og 31. maí.
  • Flugafgreiðsla 31. maí og 1. júní.
  • Skipafélög og matvöruverslanir 2. og 3. júní.
  • Olíufélög 4. og 5. júní.
  • Allsherjarverkfall 6. júní