Að mati Ríkisendurskoðunar er mikilvægt að fjármála- og efnahagsráðuneyti efli stuðning og fræðslu um nýsköpun í opinberum rekstri. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri stjórnsýsluútekt Ríkisendurskoðunar um nýsköpun í ríkisrekstri.

Þar er ráðuneytið einnig hvatt til að beita sér með markvissum hætti fyrir auknu samstarfi þeirra stofnana sem hafa byggt upp þekkingu á nýsköpun og auka aðkomu þeirra að nýsköpun ríkisaðila. „Nýsköpun hefur fengið aukið vægi í opinberum rekstri síðustu áratugi. Aðkoma ríkisins slíkum umbóta- og þróunarverkefnum er þó um margt tilviljana- og brotakennd. Fjármála- og efnahagsráðuneyti ber ábyrgð á þessum málaflokki en hefur hvorki markað heildstæða stefnu um hann né áformar slíka stefnumótun,“ segir í frétt Ríkisendurskoðunar .

Um 80% þeirra forstöðumanna sem tóku þátt í könnun Ríkisendurskoðunar um nýsköpun í árslok 2016 töldu sig hafa unnið að nýsköpun í starfi stofnunar sinnar. Rúmlega þriðjungur forstöðumanna sagðist hafa fengið tilmæli eða hvatningu til að sinna nýsköpun frá ráðuneyti sínu en einungis fjórðungur þeirra sagðist hafa fengið beinan stuðning þess. Flestir töldu að nýsköpunarverkefnin hefðu skilað árangri í formi aukinnar skilvirkni, betri þjónustu og aukinnar starfsánægju. Að lokum hvetur Ríkisendurskoðun fjármála- og efnahagsráðuneyti til að taka forystu á þessu sviði til hagsbóta fyrir hið opinbera.