Samkvæmt könnuninni í Morgunblaðinu er Sjálfstæðisflokkurinn stærsti flokkurinn og fengi 17 þingmenn. Það er mun lakari árangur en í þingkosningunum í fyrra þegar flokkurinn fékk 29% atkvæða og 21 þingmann. Þótt VG tapi milli kannana mælist fylgi flokksins mun meira en í þingkosningunum síðustu. Flokkurinn nýtur nú stuðnings 23,2% kjósenda og fengi 16 þingmenn. Í kosningunum 2016 fékk VG 15,9% atkvæða og 10 þingmenn.
Samfylkingin stendur nokkurn veginn í stað milli kannana og fengi hún samkvæmt könnuninni 15,6% atkvæða, sem er töluvert betri árangur en í síðustu þingkonsningum. Þingmenn hennar yrðu 11 en voru 3 eftir síðustu kosningar.
Miðflokkurinn fengi 9,8% fylgi og Framsóknarflokkurinn 7,1%. Flokkarnir fengju 6 og 5 þingmenn hvor. Píratar mælast með 8,2% fylgi og Viðreisn 5,7%, sem samkvæmt könnuninni myndi skila 6 og 3 þingmönnum.
Í könnuninni mælist flokkur fólksins mep 3,3% fylgi og Björt framtíð 1,5%. Hvorugur flokkanna kæmi miðað við þetta manni á þing eftir kosningar.
Í frétt á mbl.is segir að notast sé við nýja aðferðafræði við könnunina.
„Að þessu sinni spurði Félagsvísindastofnun þátttakendur í könnuninni tveggja sömu spurninga og áður: „Ef gengið yrði til kosninga í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?“ og „En hvaða flokk eða lista finnst þér líklegast að þú munir kjósa?“ Þriðja spurningin, sem notuð var í fyrri könnunum, „Hvort heldurðu að sé líklegra, að þú kjósir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk eða lista?“, var ekki notuð að þessu sinni. „Að jafnaði mun þetta hafa þær afleiðingar að fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist um 2% hærra en það hefur gert í könnunum Félagsvísindastofnunar hingað til, þó sá munur sé breytilegur milli kannana. Fylgi annarra flokka mun minnka á móti og mun mest draga úr fylgi þeirra flokka annarra en Sjálfstæðisflokksins sem mælst hafa stærstir hverju sinni,“ segir í skýringum sérfræðinga Félagsvísindastofnunar.“