Meðal þeirra tillagan sem hafa verið lagðar fyrir hluthafafund SÍF hf. 9. febrúar næstkomandi er ósk stjórnar félagsins um heimild til að breyta nafni SÍF og gera þær breytingar sem slíkri ákvörðun fylgja.

Í greinargerð með tillögunni kemur fram að í "...ljósi þeirra miklu breytinga sem orðið hafa á rekstri SÍF hf. að undanförnu telur stjórn félagsins nauðsynlegt að breyta um heiti á félaginu, m. a. til að endurspegla enn betur hið nýja og breytta félag. Verði tillagan samþykkt hyggst stjórn félagsins kynna nýtt heiti á félaginu eftir stjórnarfund sem haldinn verður strax að loknum hluthafafundinum."