Líklegt er talið að stjórnvöld í Brasilíu leggi stein í götu þess að tilboð námufyrirtækisins Vale í keppinaut sinn Xstrata nái fram að ganga. Tilboð Vale hljóðar upp á 80 milljarði bandaríkjadali og óttast stjórnvöld að ef tilboðið nái fram að ganga muni það draga úr fjárfestingum útlendinga í landinu.