Viðskiptabankarnir þrír eru einu félögin sem hafa hækkað í Kauphöllinni síðan opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og leiða því 0,2% hækkun Úrvalsvísitölunnar [ OMXI15 ].

Velta með hlutabréf er aðeins um 340 milljónir en þar af eru um 160 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ].

Krónan hefur styrkst um 0,2% frá opnun gjaldeyrismarkaða.