Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,9% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni kl. 10 í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félega en aðeins þessi þrjú félög hafa hækkað í dag.

Velta með hlutabréf er um 600 milljónir en þar af eru um 391 milljón með bréf í Glitni og um 100 milljónir með bréf í Atorku.

Krónan hefur styrkst um 0,2% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun.