Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,9% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni kl. 10 í morgun. Þegar þetta er skrifað, kl. 10:30 stendur Úrvalsvísitalan í 4.895 stigum.

Ekkert félag hefur hækkað í morgun en FL Group [ FL ] hefur lækkað mest félaga eða um 3,8%.

Þá hefur Bakkavör [ BAKK ] lækkað um 2,9% og Exista [ EXISTA ] um 2,1%.

Velta með hlutabréf er um 2,1 milljarður króna en þar af er um 1,1 milljarður með bréf í Glitni [ GLB ].

Krónan hefur einnig veikst um 0,5% frá opnun í morgun.