Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur nú, kl. 10:40 hækkað um 0,4% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni kl. 10 í morgun og stendur nú í 4.528 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er þó aðeins um 340 milljónir en þar af eru um 130 milljónir með bréf í Staum [ STRB ] og eins 130 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ].

Krónan hefur styrkst um 0,7% frá opnun gjaldeyrismarkaða og stendur gengisvísitalan nú í 163,6 stigum.