Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði við opnun markaða um 0,1% og stendur vísitalan nú í 4.934 stigum.

Spron [ SPRON ] hefur hækkað mest í morgun eða um 1,2%. Þá hefur Bakkavör [ BAKK ] hækkað um 0,7% og FL Group [ FL ] um 0,6%.

Eimskipafélag Íslands [ HFEIM ] hefur lækkað um 1,2% og þá hefur Skipti lækkað um 0,8% og Exista [ EXISTA ] um 0,7%.

Velta með hlutabréf er þegar orðin tæpir 5 milljarðar en í morgun fóru fram utanþingsviðskipti með bréf í Landsbankanaum [ LAIS ] fyrir 3,8 milljarða.