Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði um rúmt hálft prósent við opnun markaða en hefur nú, kl. 10:40 lækkað um 0,3% og stendur í 4.427 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Úrvalsvísitalan lækkaði alla daga síðustu viku nema föstudag þegar hún hækkaði undir lok dags.

Velta með hlutabréf er tæpir 300 milljónir en þar af eru um 150 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] og 50 milljónir í Marel [ MARL ] og Exista [ EXISTA ].