Í dag verður reynt til þrautar að sjá hvort grundvöllur sé til þess að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður og vinnu við gerð málefnasamnings milli Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.

Í Morgunblaðinu í dag er sagt að Sjálfstæðisflokkurinn meti það svo að nokkur útistandandi mál væru á borðinu sem yrði að útkljá áður en hægt væri að ákveða hvort flokkarnir þrír ættu eitthvert erindi í formlegar stjórnarmyndunarviðræður.

Mikilvægasta málið er ágreiningur um mögulega endurnýjaða umsókn um aðild að Evrópusambandinu, í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu. Ef ekki næst lending í því máli sé tómt mál að tala um að hefja formlegar viðræður að mati Bjarna Benediktssonar.

Margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins telja hins vegar, eins og áður hefur komið fram, að eins þingmanna meirihluti sé of naumur sem og það virðist ákveðinnar andúðar gæta í garð ákveðinna þingmanna Viðreisnar sem áður voru í röðum Sjálfstæðismanna.

Einnig sé líklegt að Bjarni Benediktsson skili af sér stjórnarmyndunarumboðinu um helgina, og þá mun væntanlega Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, taka við keflinu.