Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 6,3% í dag og stóð við lok markaða í 851 stigi samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 0,2% í gær og hafði hækkaði lítillega fram eftir degi en rauk upp undir lok dags.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkaði um 3,8% og stendur nú í 284 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en aðeins eitt félag, Marel lækkaði í dag.

Alfesca leiddi hins vegar hækkanir dagsins og hækkaði um 20%. Þá hækkaði Straumur um 11,9%.

Velta með hlutabréf var um 218 milljónir króna en þar af voru rúmar 76,5 milljónir með bréf í Össur.

Þá var velta fyrir rúmar 74 milljónir króna með bréf í Straumur og rúm 61 milljón krónur með bréf í Marel en minni velta var með bréf í öðrum félögum.

Velta með skuldabréf nam í dag tæpum 7,5 milljörðum króna.