Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 1,3% í dag og stóð við lok markaða í 840 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 6,3% í gær en sveiflaðist nokkuð í dag. Hafði í morgun lækkaði um 1,6% en um hádegi hafði vísitalan hækkað um 0,4%.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 1,9% og stendur nú í 278 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en Atlantic Patreoleum leiddi lækkanir og lækkaði um 21% í dag.

Velta með hlutabréf var um 140 milljónir króna, sem er nokkuð minna en síðustu daga, en þar af voru rúmar 126 milljónir með bréf í Straum.

Þá var velta fyrir tæpar 8 milljónir króna með bréf í Straum og rúmar 3 milljónir króna með bréf í Bakkavör en minni velta var með bréf í öðrum félögum.

Velta með skuldabréf nam í dag rúmum 10,7 milljörðum króna.