Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,74% í dag og er 6176,51 stig.

Mest hækkaði Atlantic Petroleum, eða um 7,08%, því næst Landsbanki Íslands um 2,93% og svo FL Group um 2,73%.

Mest lækkaði Mosaic Fashions, eða um 2,08%, því næst Össur með 1,3% lækkun og svo lækkaði Bakkavör Group um 1,24%.

Krónan veiktist um 0,18% í dag er gengisvísitalan 103,59. Dollar lækkaði um 0,03% gagnvart íslensku krónunni og Evran lækkaði um 0,40%.