Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,24% í dag og er 6.253,4 stig.

Atlantic Petroleum hækkaði mest, eða um 7,28%. Því næst hækkaði Kögun um 2,44% og FL Group um 2,21%.

Tryggingamiðstöðin lækkaði mest, eða 15%, því næst lækkaði SÍF um 2,35% og svo Mosaic Fashions um 1,60%.

Íslenska krónan styrktist um 0,08%. Dollari lækkaði um 0,39% gagnvart krónunni en evran styrktist 0,11%.