Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,42% og er 6.116,02 stig.

FL Group hækkaði mest, eða um 1,82%, því næst Bakkavör Group um 1,66% og Actavis um 0,91%.

Atlantic Petroleum lækkaði um 20,52% en hafði hækkað um 41,05% í gær. Flaga Group lækkaði um 2,38% og Atorka Group um 0,75%.

Gengi íslensku krónunnar styrktist um 0,08%. Bandarískur dollar lækkaði um 0,39% miðað við gengi krónunnar en evran hækkaði um 0,11%.